12. desember...

Guð minn góður! Ég bara á ekki orð! 12. desember er kominn og ég á eftir að gera allt! Eða nei, ég er búin að kaupa 2 jólagjafir... Kemur ;)

Svo eru það vinnufréttir. Þið eruð að lesa bloggið hjá aðstoðarverslunarstjóranum í Samkaup Úrval á Egilsstöðum.. Fékk stöðuhækkun... og launahækkun!! Það er gaman... Verslunarstjórinn er líka snillingur, forréttindi að fá að starfa með henni og læra af henni..

Svo er ég búin í prófum. Fékk eins og áður sagði 9 í fyrra prófinu, 9,5 útúr kúrsinum. Fékk svo 7 úr seinna prófinu en er ekki búin að fá útúr kúrsinum. Er sátt, meira en sátt við fyrri kúrsinn, en gæti að sjálfsögðu verið glaðari með seinni. En þetta gekk upp og ég er ánægð með það.

Fyrsti jólasveinninn kom í nótt og setti glaðning í skóinn hjá syni mínum. Hann var svo heppinn að fá lítinn vörubíl svipaðan og pabbi hans vinnur stundum á. Ótrúlega klár þessi sveinki.. ;) Sigurður var líka voða glaður að sjá glaðning í skónum, skildi þetta samt ekki alveg í gærkvöldi þegar ég var að útskýra þetta fyrir honum, en það hefur alveg skýrst núna ;) 

Svo er ég farin að hlakka svo mikið til jólanna... Það er að koma svo mikið af fólki sem ég er búin að sakna svo mikið alla daga.. Það er svo gott við jólin að fá alla heim.. Elska það bara!

En ætla að fara að ná barninu mínu frá Dr. Phil... Veit ekki hvort að það er endilega uppbyggilegasta sjónvarpsefnið... 

Sjáumst :)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með skólann... ég vissi að þú gætir þetta vel :)

Ég hlakka líka til jólanna. Hlakka svo til að hitta alla sem ég hef ekki hitt í allof langan tíma :)

Abba (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 10:19

2 identicon

Hjartanlega til hamingju með stöðuhækkunina :o) Þetta er alveg hreint glæsilegt hjá þér :o)

Ert greinilega að gera góða hluti :o)

Ása og bumbubúinn (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 11:17

3 identicon

Til hamingju með þetta - glæsilegur árangur! Hlakka til að koma austur og hitta ykkur! Þú ert falleg!

Auður (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 13:19

4 identicon

Til hamingju Sirrý mín, þú ertu dugleg, gáfuð og falleg :)

Gréta bezt (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 16:20

5 Smámynd: Eva Hrund S Kjerulf

jæja nú ert þú orði eins og ég...bara blogg einu sinni í MÁNUÐI....er þetta eitthvað sem við ættum að laga eða???

Eva Hrund S Kjerulf, 13.12.2008 kl. 00:03

6 identicon

Sirrý, ég er svo stolt af þér! Til hamingju með prófin og stöðuhækkunina. Þú ert dugleg, gáfuð og falleg - enda höfum við nú oft verið sagðar mjög líkar ; )

Ragga A (IP-tala skráð) 13.12.2008 kl. 01:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband