12.3.2007 | 22:51
Allt gott að frétta....
Það er löngu kominn tími á færslu, svo mikið er víst.
Margt hefur gerst síðan ég bloggaði síðast, en ég nenni nú alls ekki að rifja það allt upp! Kannski nokkra punkta...
*Fór til Reykjavíkur
*Var í Reykjavík
*Keypti hillusamstæðu
*Kom heim
*Sigurður Alex varð 9. mánaða, sem er alveg stórmerkilegt! Barnið er nýfætt!
*Sigurður Alex byrjaði að skríða, það var ofsalega mikill dugnaður...
Ég er líka komin í vorgírinn... Er búin að þrífa alla glugga að innan, setja allar gardínur í þvottavélina og þurrka af... Hellings afrek! Finnst mér allavega!
En jæja, var bara orðin leið á að sjá alltaf sömu gömlu færsluna efst...
Bendi á síðu sonar míns ef ykkur þyrstir í frekari fréttir af okkur, er mikið duglegri að uppfæra þá síðu.
Athugasemdir
Æji Sirrý mín, áður en þú veist af þá er barnið þitt úti allar helgar og þú hefur ekki hugmynd um hvar hann er. Kemur heim til að borða og biður um peninga. Eða kannski verður hann eins mikill engill og við og eyðir helgunum með mömmu sinni að horfa á DVD og borða popp!!
Hafrún fallegasta (IP-tala skráð) 13.3.2007 kl. 10:10
Bara að kvitta fyrir mig og innlitinu hjá þér
Kjánastelpan (IP-tala skráð) 15.3.2007 kl. 11:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.