3.5.2008 | 17:58
Laugardagur...
Kominn laugardagur og komið sumar aftur! Jibbý! Rosalega gott veður, sól og hiti hér í dag. Fórum í 2 ára afmæli til Hilmis Hólm í dag, eins og fermingarveisla á þeim bænum! Þvílíkar veitingar og gleði! Hilmir flottasta afmælisbarnið..
Hér var náttfatapartý í nótt... Sigfinnur frændi þeirra Bryndísar og Hrafnkels gisti hér í nótt og vöktu þau langt fram eftir... Heyrðum síðast í þeim rúmlega 5! Svo voru þau rekin á fætur klukkan hálf átta í morgun af föður sínum og litla bróður við misgóðar undirtektir! Fengu hafragraut í morgunmat og voru svo bara orðin hress. Hrafnkell ætlar svo að gista hjá Sigfinni í nótt. Við Bryndís erum að reyna að finna út hvað það er sem okkur myndi báðum langa til að borða í kvöld, erum ekki alveg að komast að sameiginlegri ákvörðun! Kemur þegar við verðum orðnar hungurmorða sennilega...
En jæja, er farin að gera einhvern fjandann....
Athugasemdir
Það er komin sunnudagur !!!!!
Gréta A (IP-tala skráð) 4.5.2008 kl. 17:51
Þú hefur nú ekki gott af því að vera að belgja þig út af sætabrauði, gamla
Þórey Birna Jónsdóttir, 6.5.2008 kl. 15:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.