24.1.2008 | 13:55
Jæja sæll
Sæll. Allt vitlaust í borginni. Gaman að því, það verður nú að vera smá spenna og gaman í þessu! Af hverju gerist aldrei neitt svona hérna á Egilsstöðum. Væri nú ekki gaman að geta farið á bæjarstjórnarfund og stappað niður fótum, klappað og öskrað ókvæðisorðum að fólkinu. Helst í beinni útsendingu í sjónvarpinu!!
Ég er allavega svo sátt orðið við að vera búin að segja upp stöð 2, þó ég missi af Glæstum vonum. Þarf bara að horfa á fréttirnar til að sjá sama söguþráð. Grátandi fullvaxnir karlmenn, hinn og þessi með heilu hnífasettin í bakinu, leynilegir fundir um "framhjáhöld" og svik. Þetta er ekki frábrugðið á nokkurn hátt....
I love it!
Takk kærlega borgarstjórn Reykjavíkur fyrir að spara mér tæpar 6 þúsund krónur á mánuði í áskriftargjöld fyrir sápuóperustöð.... TAKK!!!!!!
Athugasemdir
Hahaha, dagurinn er búinn að vera sjónvarpslega hrikalega dramatýskur!!!
Til hamingju með bloggið gæska...
Guðný Drífa Snæland, 24.1.2008 kl. 17:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.