26.2.2007 | 14:48
Blogg í tilefni dagsins...
Í dag á ekki ómerkari maður en hann Danni afi minn afmæli. Hann er kornungur kallinn, aðeins 75 ára! Ég og Sigurður Alex ásamt Öbbu okkar drifum okkur í kaffi til hans í morgun. Það var ofsalega gott að koma á Ullartangann og er það heit dagsins að drífa sig mun oftar!
Um helgina fór ég á barinn. Hefði betur drukkið aðeins minna. Ekki orð um það meir. Það var samt voðalega gaman.
Fór svo til Akureyrar í síðustu viku.. Það var gaman.
Svo var Sigurgeir að "slípirokka" í hendina á sér. Gott með hann! Ætla "slípirokka" sé orð..? Maður spyr sig...
Síðar..
Athugasemdir
Kona... þetta var gaman. Við vorum skemmtilegar eins og alltaf :)
Abbababb (IP-tala skráð) 26.2.2007 kl. 16:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.