Björgunarsveitir

Mikið ofsalega er ég ánægð með að við Íslendingar eigum svona magnað björgunarlið. Ávallt viðbúin í sjálfboðavinnu. Þetta er náttúrulega ómetanlegt..

Komið helgarfrí loksins... Hélt í dag mitt fyrsta námskeið í smá námskeiðaröð sem ég held fyrir KHB. Sá um nýliðafræðslu fyrir unga starfsmenn sem eru að hefja störf um þessar mundir. Virkilega skemmtilegur hópur sem virtist hafa mikinn áhuga fyrir því sem ég var að segja. Ég er náttúrulega rosalega montin með sjálfa mig, bjó námskeiðið til frá grunni, setti upp í powerpoint og græjaði og gerði....

En ætla að fara að njóta helgarinnar..

Síjú...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æ, þú ert svo dugleg : )

Ragga A (IP-tala skráð) 31.5.2008 kl. 18:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband