Gréta? Er þetta eitthvað sem þú þyrftir að athuga??

Ertu Survivor fíkill??

Þú ættir að íhuga að slökkva á Survivor þegar:

... Þér finnst allir í kringum þig tilheyra sama ættbálki og þú

... Þú velur fæði fyrir gæludýrið þitt með það að markmiði að það bragðist vel

... Þú endar alltaf mál þitt með orðunum "the tribe has spoken"

... Þú skipuleggur samkeppni heima hjá þér um það hver fær eftirmat

... Þú myndar bandalag með hundinum til að losna við köttinn

... Þú kveikir í kústskaftinu og situr með það eins og kyndil léttklædd úti á palli

... Þú frábiður þér öll stefnumót á föstudagskvöldum, MYNDBANDSTÆKINU ER EKKI TREYSTANDI!!!

... Þú ert farin að íhuga hvaða heimilismann þig langar helst að losna við

... Þú getur ekki hætt að tala um löngu liðnar Survivor þáttaraðir.... ALLAR SAUTJÁNÞÚSUND!!!

... Þú nefnir gæludýrin þín Morgunmat, Hádegismat og Kvöldmat

... Þér finnst allt í einu fótbolti, handbolti og ólympíuleikar ekki skipta neinu máli

... Þér finnst föstudagar koma sjaldnar og sjaldnar

... Þér finnst allir þátttakendurnir í Stjörnu-Survivor vera gamlir kunningjar....

 

Jæja Gréta, nú kemur spurningin... Hversu margar af þessum setningum getur þú sagt já við??

 

Að lokum... Elsku besta Guðrún systir mín, til hamingju með 18 ára afmælið í dag :D

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já við þeim öllum auðvitað en þessi ruslpóstvörn er alveg að fara með mig. Hvað er summan af sjö og átján?? ég ræð bara ekki við þetta svona í bókstöfum því það er bara pláss fyrir tvo stafi ....

Gréta (IP-tala skráð) 17.9.2008 kl. 14:46

2 identicon

hehehe...

Ragga A (IP-tala skráð) 20.9.2008 kl. 16:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband